Fagleg uppsetning og viðgerðir á pústkerfum

Pústkerfi í fólksbíla

Við sérhæfum okkur í uppsetningu, viðgerðum og skiptum á pústkerfum í fólksbílum af öllum helstu gerðum og tegundum. Rétt uppsett pústkerfi tryggir betra loftflæði, lægri eldsneytisnotkun og hljóðlátari akstur. Á Fjöðrinni pústverkstæði notum við aðeins gæðahluti og faglega vinnu svo pústkerfi bílsins þíns endist og virki eins og nýtt.