Rétt hljóð, réttu afköstin.

Hljóðkútar

Hljóðkúturinn sér um að draga úr hávaða frá pústkerfinu án þess að skerða afköst. Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval hljóðkúta fyrir bæði rólegan og sportlegan akstur, í öllum helstu stærðum og gerðum. Á Fjöðrinni sérhæfum við okkur í faglegri uppsetningu á hljóðkútum sem passa bæði bílnum og þínum óskum.